Kennitalan er rekin af eigendum 'Fyrirtæki til sölu/óskast'
Markmið okkar er að einfalda sölu- og kaupferli fyrirtækja, allt frá rekstri til kennitalna. Hjá Kennitölunni er aukin upplýsingagjöf, öflugri leitarvirkni og einfaldara viðmót en finnst á Facebook.
Stofna aðgangHugmyndin
Vöxtur Facebook hópsins 'Fyrirtæki til sölu/óskast' gaf til kynna að eftirspurnin eftir vettvangi eins og Kennitölunni væri nægileg til að taka hugmynd okkar á næsta stig með markaðstorginu sem hér má sjá og nota. Hér var loksins hægt að laga og betrumbæta þjónustuna á máta sem Facebook einfaldlega býður ekki upp á, en síðan þá höfum við unnið hart að því að auðvelda fólki að selja og kaupa fyrirtæki á netinu.
Pyngjan
Pyngjan er hlaðvarp Arnars Þórs Ólafssonar og Ingva Þórs Georgssonar. Í Pyngjunni eru ársreikningar fyrirtækja teknir fyrir, skoðaðir og ræddir. Hlaðvarpið byrjaði sem tíu þátta sería um greiningu áhugaverðra fyrirtækja þar sem pyngjur eigenda eru skoðaðar ásamt einfaldaðri greiningu á ársreikningum fyrirtækjanna sem þeir eiga.


Revol
Revol hugbúnaðarhús gerir hugmyndir að veruleika með þróun lausna fyrir fyrirtæki og frumkvöðla. Uppsetning hugbúnaðar, vöruþróun, og sérsniðin forritun eru meðal þeirra þjónusta sem við bjóðum upp á.
Teymi

Arnar Þór Ólafsson
Pyngjan

Ingvi Þór Georgsson
Pyngjan

Tryggvi Páll Jakobsson
Revol

Kristófer Melsted
Revol

Patrik Snær Kristjánsson
Revol

Fyrirtæki til sölu
Stærsti Facebook hópur Íslands þegar kemur að sölum og kaupum fyrirtækja!
Kennitalan
Einfaldasti staðurinn til að finna fyrirtæki til sölu, hafa samband við seljendur og fleira.
Hér getur þú fengið allar þær helstu upplýsingar um fyrirtæki til sölu, á einu einfaldasta og skilvirkasta markaðstorgi landsins.
